Frá 64 þús.
Langá
Langá á Mýrum er ein af gjöfulustu og fallegustu laxveiðiám landsins. Hún býður upp á fjölbreytta veiðistaði með góðu aðgengi en alls eru 93 veiðistaðir skráðir. Langáin á upptök sín í Langavatni sem er um 36 km frá ós árinnar en áin fellur í sjó vestan við Borgarnes. Stangaveiði á sér langa sögu í Langá, lengri en almennt þekkist í sögu laxveiðiáa á Íslandi. Sagan er tengd Ensku húsunum á Langárfossi en þau eru talin elstu veiðihús landsins þó þau sinni því hlutverki ekki í dag.
Gisting
36 manns í þjónustu.
Tímabil
Frá 19. júní til 25. september.
Veiðin
Lax, 8-12 stangir, eingöngu fluga með flugustöng. Kvóti er tveir fiskar á dag undir 70cm, leyfilegt er að veiða og sleppa 15 löxum eftir það.
Hentar
Byrjendum sem lengra komnum.
Loading...
+354 821 3955
svfrlang@gmail.com
Staðarhaldari veitir upplýsingar um veiði og veiðifyrirkomulag. Hann tekur á móti veiðimönnum við komu, sér um skiptingu á svæði og fer yfir veiðireglur. Hann veitir einnig upplýsingar um óskilamuni.
Daglegur veiðitími
Matmálstímar í veiðihúsi
Hús- og svæðisreglur
Fæðisgjald á mann pr. dag
Veiðisvæðið - veiðin
Langá er meðalstór á og blátær og veiðisvæðið er um 26 km langt með um 100 merktum veiðistöðum. Níu til tíu feta einhenda fyrir línu 6-8 er kjörið veiðitæki og eru litlar flugur alla jafnan gjöfulastar.
Í Langá er fjöldi hylja þar sem kjörið er að gára vatnsyfirborðið til að egna laxinn til töku. Uppistaðan í aflanum er kraftmikill smálax en stærstu fiskar hvers tímabils hafa undirfarin ár verið á bilinu 12-15 pund.
Aðgegni að veiðistöðum Langár er til fyrirmyndar og heita má að hægt sé að aka að öllum merktum veiðistöðum. Áratugum saman hafa landeigendur og leigutakar nostrað við ána til að tryggja að dvöl veiðimanna við Langá verði sem ánægjulegust.
Meðalveiði síðustu 10 ára (2014-2023) er 1236 laxar, mest veiddist sumarið 2015 en þá veiddust 2616 laxar.
Hér má skoða umfjöllun og veiðistaðalýsingu fyrir Langá í Veiðimanninum.













Langárbyrgi
Það væsir ekki um veiðimenn í Langárbyrgi en þar er þjónusta við veiðimenn eins og best verður á kosið. Ný viðbygging var tekin í notkun sumarið 2024 þannig að auðvelt er fyrir veiðimenn að panta sérherbergi, þó svo þeir deili stöng, gegn vægu gjaldi. Húsið, sem stendur á bökkum hinna rómuðu Hvítsstaðahylja, er með fjórtan tveggja manna herbergjum og sex nýjum einstaklingsherbergjum.
Í gufubaðinu er kjörið að fara yfir helstu afrek dagsins á bakkanum og í setustofunni geta menn horft dreymnir á svip yfir Hvítsstaðahyljina og lagt upp veiði næsta dags.
Aðstaða fyrir vöðlur, skó og tilheyrandi er til fyrirmyndar.
Full þjónusta er í húsinu allan veiðitímann.
Húsið / til staðar / hafðu í huga
Gagnlegar upplýsingar
Leiðsögn
Leiðsögumenn SVFR eru veiðimenn með mikla og langa veiðireynslu og eru valdir af kostgæfni. Með leiðsögn verður veiðin markvissari, tíminn nýtist betur, og oftar en ekki ánægjulegri. Leiðsögumenn okkar upplýsa veiðimenn um bestu veiðistaðina í ánni, búnaðinn og veiðitækni.
Markvissari veiði
Fagleg ráðgjöf
Veiðireglur
Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr ánni, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.
Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í veiðibók.